Í kvöld lauk 21. umferðinni í Iceland Express deild karla þar sem Grindvíkingar og Keflvíkingar unnu mikla spennusigra á andstæðingum sínum og Stjarnan skellti Haukum í Ásgarði í Garðabæ. Með sigri sínum í kvöld færðust Grindvíkingar upp í 2. sæti deildarinnar og KR niður í það þriðja.
Úrslit kvöldsins:
Stjarnan 90-69 Haukar
Fannar Helgason og Justin Shouse voru báðir með 17 stig í liði Stjörnunnar, Fannar auk þess með 13 fráköst og Justin 9 stoðsendingar. Hjá Haukum var Gerald Robinson með 19 stig og 10 fráköst og Semaj Inge hafði hægt um sig með 12 stig og 6 stoðsendingar.
Grindavík 91-90 Fjölnir
Ólafur Ólafsson gerði sigurstig Grindavíkur á vítalínunni þegar fjórar sekúndur voru til leiksloka. Brandon Brown fékk svo þriggja stigaskot fyrir Fjölni til að stela sigrinum en það fór ekki ofan í. Mladen Soskic var stigahæstur hjá Grindvíkingum í kvöld með 28 stig og Ólafur Ólafsson bætti við 20. Hjá Fjölni var Brandon Brown með 29 stig og 13 fráköst og Ægir Þór Steinarsson gerði 19 stig og gaf 13 stoðsendingar.
Tindastóll 92-94 Keflavík
Keflvíkingar höfðu betur eftir hörkuleik í Síkinu þar sem þristur frá Ciric í stöðunni 90-90 reið baggamuninn þegar örfáar sekúndur voru til leiksloka. Thomas Sanders gerði 24 stig í liði Tindastóls en á síðustu sekúndum leiksins fékk hann slæma byltu og var studdur af velli. Hjá Stólunum sem töpuðu í kvöld sínum sjötta leik í röð var Helgi Rafn Viggósson með 23 stig og 3 fráköst.
Nánar síðar…





