spot_img
HomeFréttirUppselt á leik Íslands í Georgíu - Enn til miðar á heimaleikinn...

Uppselt á leik Íslands í Georgíu – Enn til miðar á heimaleikinn gegn Spáni

Georgíska körfuboltasambandið hefur tilkynnt að uppselt sé á leik Íslands gegn Georgíu sem fram fer þann 26. febrúar næstkomandi í höfuðborg landsins Tíblisi. Höllin sem leikið verðu í er skýrð í höfuðið á borginni, tekur um 10.000 manns í sæti og því má gera ráð fyrir nokkrum látum í þessum síðasta leik riðlakeppni liðanna í undankeppni HM 2023.

Leikurinn ytra gegn Georgíu verður seinni leikur beggja liða í þessum lokaglugga undankeppninnar, en Georgía mun leika gegn Hollandi þann 23. febrúar í Almere á sama tíma og Ísland tekur á móti Spáni í Laugardalshöll í næst síðasta leik keppninnar.

Miðasala er í fullum gangi fyrir heimaleik Íslands gegn Spáni og fer miðasala fram í gegnum smáforritið Stubb, en samkvæmt heimildum Körfunnar gengur miðasala vel.

https://www.karfan.is/2023/02/hvad-tharf-island-ad-gera-til-thess-ad-tryggja-sig-a-lokamot-hm-2023/

Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil

Fréttir
- Auglýsing -