HomeFréttirUnnur Lára meiddist á móti KR

Unnur Lára meiddist á móti KR

Unnur Lára Ásgeirsdóttir meiddist illa á ökkla í sigurleiknum í gær á móti KR í Vodafonehöllinni. Hún var að fara í sóknarfrákast og lendir þannig að hún snýr illa upp á vinstri ökklann.
 
Hún var sett í gifsspelku í gærkvöldi og verður með hana þangað til á þriðjudag. Þá fer hún í skoðun til að skera úr um hvort þetta sé beinbrot, slit eða slæm tognun.
 
“Ég var að fara í frákast og þegar ég lenti á gólfinu þá lenti ég vitlaust á ökklanum og sný mig”.

“Fyrst hélt ég að fóturinn hafi farið úr lið og að ég hafi smellt honum í liðinn aftur þegar ég læt fótinn liggja á gólfinu”
 
Sagði Unnur Lára aðspurð um tilurð meiðslanna.
 
 
K. Bergmann
 
Fréttir
- Auglýsing -