Unnur Lára Ásgeirsdóttir var ekki með Val í kvöld á móti Fjölni þar sem hún meiddist í seinustu viku á móti KR.
Hún er laus við gifsspelkuna sem hún var sett í og eftir læknisskoðun í gær hefur komið í ljós að hún er ekki brotin heldur illa tognuð.
Hún verður frá æfingum næstu vikuna en má þá byrja léttar æfingar og sjá til með framhaldið.
K. Bergmann




