HomeFréttirUndir 16 ára lið kvenna tapaði fyrir Svíþjóð

Undir 16 ára lið kvenna tapaði fyrir Svíþjóð

Undir 16 ára lið Íslands tapaði fyrir Svíþjóð í fjórða leik Norðurlandamóts þessa árs í Solnahallen með 55 stigum gegn 86. 

 

 

Líkt og áður í mótinu byrjuðu íslensku stelpurnar vel og náðu að klára fyrsta leikhluta leiksins með stöðuna 16-18 og var þá allt útlit fyrir að um spennandi leik væri að ræða.

 

Strax á fyrstu 5 mínútum annars leikhlutans hleyptu þær þó Svíþjóð 15 stigum framúr sér, en á því tímabili skoraði íslenska liðið aðeins 1 stig gegn 13 þeirra. Leikhlutinn endaði svo með þessum sama mun, 15 stigum, í 25-40.

 

Atkvæðamest Íslands í fyrri hálfleiknum var Þóranna Kika Hodge Carr, en hún skoraði 9 stig og tók 4 fráköst.

 

Seinni hálfleikinn hóf Svíþjóð svo að miklu leyti eins og þær höfðu annan leikhlutann. Með 14 stiga áhlaupi. Góð ráð því orðin dýr fyrir Ísland fyrir lokaleikhluta leiksins þar sem munurinn var kominn í 31 stig, 41-72.

 

4. leikhlutann náði Ísland hinsvegar að halda í við Svíþjóð, líkt og þær gerðu í þeim 1., en hann endaði 14-14 og fór Svíþjóð því með 31. stigs sigur, 55-86, af hólmi í þetta skiptið.

 

Atkvæðamest í íslenska liðinu var áðurnefnd Þóranna Kika Hodge Carr með 19 stig og 7 fráköst á þeim 33 mínútum sem hún spilaði í leiknum.

 

Næsti leikur liðsins, sem einnig er síðasti leikur liðsins á mótinu, er gegn Danmörku á morgun, en hægt verður að fylgjast með honum inni á www.kki.is (tölfræði) og að sjálfsögðu fylgir umfjöllun eftir leik héðan af www.karfan.is.

 

Umfjöllun, myndir & viðtöl / Davíð Eldur

 

Myndir

Fréttir
- Auglýsing -