HomeFréttirUmfjöllun: Valur fór létt með Njarðvík

Umfjöllun: Valur fór létt með Njarðvík

Valur fékk Njarðvík í heimsókn í dag í lokaleik 14. umferðar Dominosdeildar kvenna. Njarðvík reyndist Val ekki erfið hindrun og sigraði Valur örugglega 95-56.
Gaman var að sjá þjálfara beggja liða gefa öllum leikmönnum sínum spilatíma eftir að úrslitin voru ráðin, sem gerðist mjög snemma reyndar, og spiluðu aðeins þrír leikmenn hjá Val yfir 20 mínútur og bara einn undir 10 mínútur. Hjá Njarðvík voru bara tveir leikmenn sem spiluðu yfir 20 mínútur og, eins og hjá Val, bara einn leikmaður með undir 10 mínútur.
 
Byrjunarlið Vals: Guðbjörg Sverrisdóttir, Alberta Auguste, Ragna Margrét Brynjarsdóttir, Kristrún Sigurjónsdóttir og María Björnsdóttir.
 
Byrjunarlið Njarðvíkur: Salbjörg Sævarsdóttir, Lele Hardy, Guðlaug Björt Júlíusdóttir, Svava Ósk Stefánsdóttir og Ína María Einarsdóttir.
 
Valur byrjaði leikinn sterkt og komust í 13-6 eftir tæpar fimm mínútur. Annars var mikið af mistökum hjá báðum liðum, mikið af töpuðum boltum. Eftir átta mínútna leik var staðan orðin 21-12 fyrir Val og leit út fyrir að þær væru að fara skilja Njarðvík eftir. Njarðvík náði að laga stöðuna með því að komast þrisvar sinnum á línuna, og setja fimm af sex vítum niður, og minnka muninn í aðeins fjögur stig með 30 sek. eftir af fyrsta leikhluta. Valur átti hins vegar lokasóknina og nýtti hana og leiddi því með sex stigum að loknum fyrsta leikhluta.
 
Leiknum lauk eiginlega í öðrum leikhluta þar sem þar sem að Valur gjörsamlega yfirspilaði Njarðvík 27-7 þar sem að Kristrún Sigurjónsdóttir var atkvæðamest með 8 stig. Lele Hardy bókstaflega hvarf og skoraði aðeins 1 stig í leikhlutanum. Valur leiddi því 50-24 í hálfleik.
 
Einstefna Vals hélt áfram í þriðja leikhluta sem þær unnu 25-12 og átti Ragna Margrét Brynjarsdóttir hreint magnaðar fjórar mínútur þar sem að hún skoraði 10 stig í röð og hirti 3 fráköst. Staðan 75-36 að lokum þriðja leikhluta.
 
Í fjórða leikhluta hvíldi Ágúst Björgvinsson allt byrjunarliðið sitt og sá Unnur Lára Ásgeirsdóttir sér því leik á borði að verða sitgahæsti leikmaður Vals þar sem að hún var einungis tveimur stigum á eftir Kristrúnu sem var með 18 stig. Unnur skellti niður sínum þriðja þrist í leiknum þegar tæpar þrjár mínútur voru liðnar af leikhlutanum, og var það systir hennar hún Kristín Óladóttir sem átti stoðsendinguna, og kom sér í 19 stig. Ekki tókst henni að komast yfir 20 stigin því hún fór fljótlega illa af ráði sínu og fékk sína 5. villu.
 
Stigahæstar hjá Val: Unnur Lára Ásgeirsdóttir 19 stig/2 fráköst/3 stolnir boltar, Kristrún Sigurjónsdóttir 18 stig/6 fráköst, Alberta Auguste 12 stig/4 fráköst.
 
Sigahæstar hjá Njarðvík: Lele Hardy 19 stig/11 fráköst, Eyrún Líf Sigurðardóttir 8 stig, Guðlaug Björt Júlíusdóttir 7 stig/4 fráköst.
 
Leikmaður leiksins: Unnur Lára Ásgeirsdóttir
 
 
 
Mynd/ Torfi Magnússon: Unnur Lára Ásgeirsdóttir átti fjórar “No look” sendingar í leiknum í dag.
 
Umfjöllun/ K. Bergmann
Fréttir
- Auglýsing -