spot_img
HomeFréttirUmfjöllun: Njarðvík stakk af í fjórða

Umfjöllun: Njarðvík stakk af í fjórða

Njarðvíkingar gerðu góða ferð í Dalhúsin í Grafarvogi í kvöld þegar grænar lögðu gular 78-99 í Iceland Express deild kvenna. Shanae Baker fór mikinn í Njarðvíkurliðinu með 34 stig, 8 fráköst og 6 stoðsendingar en í liði Fjölnis var Brittney Jones með heil 40 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar. Eftir sigurinn í kvöld eru Njarðvíkingar í 3. sæti deildarinnar með 8 stig en Fjölnir í 4.-8. sæti með 4 stig.
 
Leikurinn gekk í bylgjum hjá Fjölni, voru oftar en ekki 9-10 stigum á eftir Njarðvíkingum en náðu svo að klóra sig nærri. Fyrstu þrjátíu mínútur leiksins einkenndust af þessum sveiflum þar sem Fjölnir var að elta.
 
Í fjórða leikhluta skildu endanlega leiðir, Njarðvík vann leikhlutann 15-26 og þær Ólöf Helga Pálsdóttir og Petrúnella Skúladóttir gerðu vel gegn Brittney Jones þrátt fyrir að hún hafi skoraði 40 stig í leiknum. Jones átti erfitt uppdráttar gegn þeim í fjórða leikhluta og hafði það töluverð áhrif á leik Fjölnisliðsins.
 
Þriggja stiga skotin voru ekki að detta hjá Fjölni í kvöld, 0 af 13 og hafði það sitt að segja. Nánast með ólíkindum að koma ekki niður þriggja stiga skoti allan leikinn.
 
 
Stigaskor:
 
Fjölnir: Brittney Jones 40/7 fráköst/6 stoðsendingar/5 stolnir/4 varin skot, Katina Mandylaris 20/16 fráköst, Birna Eiríksdóttir 9, Erla Sif Kristinsdóttir 7/7 fráköst, Eva María Emilsdóttir 2, Erna María Sveinsdóttir 0, Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir 0/4 fráköst, Margrét Loftsdóttir 0, Telma María Jónsdóttir 0, Sigrún Anna Ragnarsdóttir 0, Margrét Helga Hagbarðsdóttir 0, Sigrún Gabríela Jóhannsdóttir 0.
 
Njarðvík: Shanae Baker 34/8 fráköst/6 stoðsendingar, Lele Hardy 23/17 fráköst/7 stolnir, Petrúnella Skúladóttir 17, Sara Dögg Margeirsdóttir 10, Ólöf Helga Pálsdóttir 4, Salbjörg Sævarsdóttir 4, Emelía Ósk Grétarsdóttir 4, Erna Hákonardóttir 2, Aníta Carter Kristmundsdóttir 1, Harpa Hallgrímsdóttir 0, Ásdís Vala Freysdóttir 0, Eyrún Líf Sigurðardóttir 0.
 
Dómarar: Björgvin Rúnarsson, Halldór Geir Jensson
 
Myndasafn og umfjöllun/ Tomasz Kolodziejski – [email protected]
Fréttir
- Auglýsing -