spot_img
HomeFréttirUmfjöllun: KR sigur í DHL-höllin: Hetjuleg barátta Hamars

Umfjöllun: KR sigur í DHL-höllin: Hetjuleg barátta Hamars

 
Fyrsta umferð Iceland Express deildar kvenna hófst í kvöld með heillri umferð. Í Vesturbænum komu Hamarstúlkur í heimsókn og mættu nýbökuðum Meisturum meistaranna KR. Undanfarin ár hafa liðin verið í toppbaráttunni á öllum vígstöðum og er skemmst að minnast úrslitaviðureignarinnar 2010 um Íslandsmeistaratitilinn sem fór í oddaleik. Mikið vatn hefur þó runnið til sjávar síðan og bæði liðin gjörbreytt, nýjir þjálfarar og einungis tveir leikmenn eftir úr þeirri úrslitarimmu.
Hlutskipan liðanna í lok tímabils verður líka ólíkt ef marka má spá félaganna sem birt var á kynningar fundi Iceland Express deildanna í gær en þar er KR liðinu spáð 2. sæti en deildarmeisturum Hamars er spáð 7. og næst síðasta sætinu.
 
Það var hins vegar ljóst frá fyrstu mínútu að gestirnir úr Hveragerði hlusta ekki á einhverja spádóma heldur mættu baráttuglaðar og óhræddar til leiks. Margir hefðu búist við að KR liðið myndi stinga af í upphafi, sérstaklega eftir góða frammistöðu gegn Keflavík á sunnudaginn, en sú var ekki raunin. Liðin skiptust á að skora eftir mikið harðfygli og leikurinn langt frá því að vera áferðarfallegur í upphafi.
 
Hamarsliðið beitti svæðisvörn sem vafðist mikið fyrir KR liðinu sem náði engu flæði í leik sinn og skoraði mest megnis eftir klafs og sóknarfráköst. Þolinmæði einkenndi sóknarleik gestanna sem gerðu fá mistök sóknarlega og enduðu flestar sóknir þeirra með skoti. Liðið er að mestu skipað ungum uppöldum stúlkum úr Blómabænum með litla sem enga úrvalsdeildarreynslu og tveimur erlendum leikmönnum þeim Samanthu Murray og Hönnuh Tuomi.
 
Eftir 5 mínútna leik var staðan 9-8 KR í vil og tók Ari Gunnarsson leikhlé enda leikur KR stúlkna undir væntinum. Leikhléið virtist virka vel þar sem Bryndís Guðmundsdóttir skoraði 6 stig í röð og Reyana Colson bætti við öðrum 6 og staðan 21-10 áður en Murphy minnkaði muninn um tvö stig á vítalínunni. Staðan 21-12 eftir fyrsta leikhluta og bjuggust flestir við að KR myndu nú stinga af.
 
Hamarsstúlkur komu hins vegar sterkar til leiks í upphafi annars leikhluta og náðu minnka muninn í 21-20 með 5 stigum í röð frá hinni ungu Kristrúnu Antonsdóttur en lykillinn að velgegninni var frábær frammistaða Tuomi á báðum endum vallarins. Tuomi þessi er gríðarlega líkamlega sterkur leikmaður og kann körfuboltafræðin vel. Ljóst er að hún mun valda miklum usla í vítateigum andstæðinga Hamars í vetur enda einstaklega kraftmikil bæði í fráköstum og stigaskori. Það kom því fáum á óvart að Hamarsliðið myndi lenda í vandræðum þegar Tuomi fékk sína þriðju villu um miðbik leikhlutans og Lárus Jónsson, þjálfari Hamars, sá sér þann einn kost í boði að skipta henni útaf. Villan bar að með þeim hætti að Tuomi stal boltanum í vörninni og keyrði í sókn einsog eimreið en hin íturvaxna Reyana Colson fórnaði bókstaflega líkama og limum er hún steig fyrir og tók ruðning, eitthvað sem fæstir hefðu þorað og flestir mega taka til fyrirmyndar. Hamar fundu vel fyrir því að missa Tuomi úr miðri svæðisvörninni og KR stúlkur gengu á lagið með Hafrúnu Hálfdánardóttur í fararbroddi meðan Murphy reyndi að halda gestunum inní leiknum sóknarlega. Gestgjafarnir kláruðu hálfleikinn á 17-4 spretti og leiddu í hálfleik 38-24.
 
Munurinn hélst svipaður í upphafi seinni hálfleik og virtist sem KR stúlkur ætluðu að sigla heim öruggum sigri en þær náðu nokkrum sinnum 15 stiga forskoti. Sigrún Sjöfn kom KR stúlkum í 49-34 um miðbik þriðja leikhlutans en þá smelltu gestirnir hreinlega í lás og hægt og rólega hófu að mjatla muninn niður. Leikstíll Hamars er ekki kannski sá fagursti en þær vita uppá hár hvar styrkleikar liðsins liggja og eru með skýr markmið varnarlega. Það var einmitt þessi atriði sem liðið hóf að framkvæma betur í lok þriðja leikhlutans en boltanum var dælt inná Tuomi í teignum og svæðisvörnin lokaði öllum leiðum KR liðsins að körfunni. Tuomi minnkaði muninn loks í 49-45 með tveimur vítum sem kóranði góðan 11-0 kafla sem vannst með áræðni og baráttu. Margrét Kara átti þó lokaorðið með skoti af stuttu færi og staðan 51-45 eftir leikhlutann og allt galopið.
 
KR stúlkur komust strax í 55-48 en Tuomi minnkaði muninn í 55-52 og allt stefndi í hörkuspennandi lokakafla. Reyana Colson, bandaríski leikmaður KR liðsins, sem hafði ekki haft sig mikið í frammi fram að þessu tók þá á skarið. Hún hóf að pressa bakverði Hamarsliðið stíft sem lentu í miklum vandræðum og skoraði einnig 6 stig á stuttum kafla. Margrét Kara, sem hafði ekki hitt vel í leiknum, setti svo stóran þrist niður og kom KR liðinu aftur í 15 stiga forskot, 67-52, þegar 4 mínútur voru eftir.
Sá munur var einfaldlega of mikill til að brúa fyrir Hamarsliðið á skömmum tíma enda ekki mikið eftir á tanknum hjá liðinu eftir mikla baráttu í leiknum. Svo fór að KR liðið fór með sigur af hólmi, 73-60, í leik sem verður seint minnst fyrir fegurð og gæði, heldur baráttu og ákefð.
 
Hamarsliðið má vera stolt af leik sínum í Vesturbænum í kvöld en þær mættu ákveðnar til leiks og óhræddar við gestgjafanna þó svo að mikill reynslumunur væri á leikmönnum liðanna. Leikur liðsins var skipulagður á báðum endum vallarins og lék liðið uppá sína styrkleika. Hannah Tuomi er leikmaður sem á eftir að láta mikið af sér kveða í vetur og má fastlega reikna með þvi að stóru leikmenn KR liðsins séu sem lurkum lamdar eftir átökin við hana. Fáir skulu þó halda að hún sé einungis kraftaleikmaður því hún er einkar klár spilari sem á eftir að nýtast reynslulitlu liði Hamars vel. Samantha Murphy hefur líkt og Tuomi mikla ábyrgð í sókninni og þær tvær eiga greinilega að sjá um stigaskor liðsins í vetur. Murphy átti ágætis leik og sýndi á köflum góða takta. Þær Kristrún Antonsdóttir og Jenný Harðardóttir áttu líka góðan leik og hin hávaxna Regína Guðmundsdóttir komst einnig vel frá sínu.
 
KR stúlkur áttu ekki góðan leik en náðu samt að klóra fram sigur en slíkir sigrar munu telja mikið í lok tímabilsins. Allt flæði vantaði í sóknarleik liðsins gegn þéttri svæðisvörn gestanna og þolinmæði liðsins var af skornum skammti. Varnarlega lét liðið Tuomi hafa virkilega mikið fyrir hlutunum sem hafði mikið að segja en 2 af fyrstu 3 villu Tuomis voru sóknarvillur eftir góðan varnarleik KR kvenna. Þann tími sem Tuomi sat útaf vegna villuvandræðna í fyrri hálfleik vann KR liðið með 13 stigum sem var einnig munurinn á liðunum í lok leiks. Erfitt er að taka leikmenn út KR liðinu en flestar voru að spila undir pari. Það voru þó helst Hafrún Hálfdánardóttir og Bryndís Guðmundsdóttir sem sköruðu fram úr en aðrar áttu fína spretti en duttu alveg niður á milli.
 
Dómarar leiksins voru þeir Rögnvaldur Hreiðarson og Aðalsteinn Hjartarson sem komust vel frá sínu en það verkefni að dæma í „kringum“ Hönnuh Tuomi hlýtur að vera vandasamt verk þar sem miklar og öflugar snertingar eiga sér stað frá bæði henni og leikmönnunum í kring.
 
Næsti leikur KR er útileikur gegn Njarðvík að viku liðinni en Hamarstúlkur mæta á annan erfiðan útivöll er þær mæta Íslands- og bikarmeisturum Keflavíkur í Toyota-Höllinni.
 
Umfjöllun: FFS
Fréttir
- Auglýsing -