HomeBónus deildinBónus deild kvennaStjarnan í toppsætið eftir burst gegn botnliðinu

Stjarnan í toppsætið eftir burst gegn botnliðinu

Stjarnan fór létt með lánlaust lið Fjölnis í Bónus deild kvenna í kvöld þegar liðin mættust í ÞG Verk-höllinni í Garðabæ. Lokatölur urðu 110–69 eftir algjöra einhliða yfirburði heimakvenna frá öðrum leikhluta.

Með sigrinum jafnaði Stjarnan Grindavík á toppi deildarinnar með tíu stig eftir sex leiki, en Fjölniskonur sitja enn á botninum án stiga.

Fjölnir byrjaði leikinn af krafti og hafði frumkvæðið framan af í fyrsta leikhluta, en Garðbæingar fundu fljótt taktinn og leiddu 28–20 eftir tíu mínútur. Eftir það var aldrei spurning um sigurvegara. Stjarnan jók forskotið jafnt og þétt með frábærum varnarleik og gríðarlegum hraða sem skilaði 24 stigum beint úr 25 töpuðum boltum Fjölnis.

Agnes María Svansdóttir fór fyrir sóknarleik Stjörnunnar og skoraði 27 stig á aðeins 20 mínútum. Stina Josefine Almqvist bætti við 15 stigum og Xaviera Alexandria Dyer skilaði tvennu með 12 stigum og 10 fráköstum. Breiddin skilaði sér ríkulega hjá heimaliðinu en bekkurinn skilaði heilum 37 stigum gegn 14 frá gestunum.

Í liði Grafarvogsstúlkna bar mest á Huldu Ósk Bergsteinsdóttur sem átti fína tvennu; 18 stig og 13 fráköst. Charisse Fairley skoraði 13 stig og gaf sjö stoðsendingar og Arna Rún Eyþórsdóttir skilaði 10 stigum og sex fráköstum. Fjölniskonur réðu hins vegar ekkert við grimma vörn Stjörnunnar sem stal 16 boltum og refsaði grimmt á opnum velli.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -