spot_img
HomeFréttirUmfjöllun: KFÍ stal sigrinum á lokamínutunum

Umfjöllun: KFÍ stal sigrinum á lokamínutunum

Það er skemmtileg tilviljun að gestaliðið í fyrsta heimaleik KFÍ í Dominos deildinni í ár var lið Skallagríms úr Borgarnesi, en þessi lið mættust í lokaleik fyrstu deildarinnar í vor. Leikurinn að þessu sinni einkenndist af háu spennustigi leikmanna, sem smitaði alla viðstadda og jafnvel einnig ágæta dómara leiksins. Eftir háspennu og dramatík, með miklum afköstum leikmanna og dómara, varð niðurstaðan eftir framlengingu nákvæmlega á sama veg og þegar liðin mættust í vor. Fyrirsögn fréttarinnar var því endurnýtt orðrétt!
Byrjunarlið heimamanna skipuðu þeir Jón Hrafn, Mirko, Chris, BJ og Pance Fyrir Skallana voru það þeir Hörður Helgi, Páll Axel, Sigmar, Carlos og Trausti sem hófu leik. Gestirnir mættu mjög ákveðnir til leiks og virtust miklu tilbúnari í baráttuna en heimamenn, enda náðu þeir mest 12 stiga forystu þegar tæplega tvær mínútur voru eftir af leikhlutanum. KFÍ náði að rétta sinn hlut nokkuð áður en flautan gall. Á þeim kafla fékk KFÍ vítamínsprautu af bekknum, þegar Pétur setti skipti Guðmundi Jóhanni Guðmundssyni inná. Eftir fyrsta leikhluta leiddu Skallagrímsmenn með 8 stigum (20:28) og þeir leiddu leikinn í næsta leikhluta einnig. Mikil barátta var hjá báðum liðum, talsvert um mistök og tapaða bolta. KFÍ náði með seiglu að saxa niður forskot gestanna og staðan í hálfleik var 37:43 fyrir Borgnesinga sem virtust til alls líklegir í kvöld með Pál Axel í broddi fylkingar.
 
Eftir leikhlé jafnaðist leikurinn og var í járnum í raun og veru það sem eftir var. Skallarnir leiddu með 2-6 stigum lengst af en þó náði KFÍ í fyrsta sinn forskoti með góðri körfu Jóns Hrafns um miðbik leikhlutans. Staðan var jöfn, 60:60 fyrir lokaleikhlutann og möguleikar beggja liði nokkuð góðir. Þarna voru liðin farin að uppskera nokkuð ríkulega á villutöflunni og ljóst að það gæti orðið tvísýnt að allir næðu að klára leikinn. Útlitið sem sagt nokkuð gott fyrir áhorfendur, enda átti það eftir að koma á daginn. Fjórði leikhluti var æsispennandi en Ísfirðingar urðu fyrir blóðtöku þegar þeir misstu Chris útaf með fimmtu villuna um miðbik fjórðungsins. KFÍ neitaði einfaldlega að gefast upp og héldu sínu þannig að loknum venjulegum leiktíma var staðan 84:84. Bæði lið höfðu átt nokkuð góða möguleika á því að tryggja sér sigurinn en spennustigið títtnefnda var líklega farið að segja verulega til sín. Því varð að framlengja leikinn og bæði lið búin að missa tvo leikmenn útaf og bæði með tvo leikmenn með 4 villur í þokkabót.
 
Skallagrímsliðið byrjaði framlenginguna af sama krafti og í upphafi leiks. Þegar staðan var orðin 84:88 fyrir gestina eftir rúmlega mínutu leik virtust þeir hafa öll ráð heimamanna í hendi sér, sem höfðu misst af velli leikstjórnandann BJ með fimmtu villuna. Það var fyrir mikla baráttu að KFÍ náði að jafna leikinn og rétt í blálokin þegar 11 sekúndur lifðu af leiknum, fékk Mirko vítaskot sem hann setti niður alveg svellkaldur. Þar með komust heimamenn yfir 95:94 og náðu að verjast næstu sókn og tryggja sér sigurinn í fyrsta heimaleik vetrarins. Mjög mikilvægan sigur í uppgjöri nýliðanna í Dominos deildinni.
 
(BJ Spencer að gera 2 af 25 stigum sínum í leiknum) 
 
Páll Axel var í algjörum sérflokki í kvöld og átti stórleik. Annars virtust gestirnir nokkuð jafnir og með góða liðsheild. Undirritaður spáir því að heimavöllur þeirra verði mörgum liðum erfiður. Lið KFÍ virtist nokkuð mistækt en augljóslega var mikilvægt framlag BJ sem var með 25 stig. Það verður þó að hrósa ungu leikmönnum KFÍ sem voru mjög mikilvægir einmitt þegar mest á reyndi og það hallar held ég á engan að nefna aftur Guðmund Jóhann sem verður spennandi að fylgjast með í vetur.
 
KFÍ: Bradford Harry Spencer 25/4 stoð, Mirko Stefan Virijevic 21/6 fráköst, Christopher Miller-Williams 18/12 fráköst, Jón H. Baldvinsson 11/9 fráköst, Guðmundur J. Guðmundsson 8/8 fráköst, Pance Ilievski 6/4 fráköst, Leó Sigurðsson 6, Stefán D. Garcia 0/2 fráköst, Jón K. Sævarsson 0, Óskar Kristjánsson 0, Gautur A. Guðjónsson 0.
 
Skallagrímur: Páll A. Vilbergsson 45/5 fráköst, Carlos Medlock 18/4 stoð, Hörður H. Hreiðarsson 8/5 fráköst, Egill Egilsson 6/3 fráköst og 5 stoð, Sigmar Egilsson 5, Trausti Eiríksson 5/10 fráköst, Orri Jónsson 4, Davíð Ásgeirsson 2, Birgir Þ. Sverrisson 1, Atli Aðalsteinsson 0, Andrés Kristjánsson 0, Davíð Guðmundsson 0,
 
Dómarar: Georg Andersen, Jón Guðmundsson og Ísak E. Kristinsson.
 
Texti: Helgi Kr. Sigmundsson
Mynd: Halldór Sveinbjörnsson
Fréttir
- Auglýsing -