Fjölnismenn sóttu hratt sem virkaði oft mjög vel fyrir þá. ÍR lenti þá oft í því að brjóta eða hreinlega fá á sig auðvelt lay-up. Fjölnismenn voru komnir yfir þegar rúmlega tvær mínútur voru liðnar af öðrum leikhluta, 28-25. Gestirnir náðu svo að jafna leikinn í stöðunni 38-38 þegar rúmar 6 mínútu voru liðnar af öðrum leikhluta. Það voru svo ÍR-ingar sem leiddu í hálfleik með einu stigi, 47-48.
Stigahæstir í hálfleik hjá heimamönnum voru Arnþór Freyr Guðmundsson með 10 stig, Ægir Þór Steinarsson með 7 stig og Jón Sverrisson með 6 stig. Hjá ÍR var Nemanja Sovic stigahæstur með 13 stig en næstir voru James Bartolotta með 19 stig og Kristinn Jónsson með 8 stig.
ÍR tók annan sprett í upphafi þriðja leikhluta og leiddu 53-61 þegar þrjár mínútur voru liðnar. Heimamenn voru þó aldrei langt undan en hraður leikur þeirra breytti oft leiknum á örstundu. Munurinn var kominn niður í 4 stig, 61-65 þegar gestirnir tóku aftur af skarið og þegar tvær og hálf mínúta var eftir af þriðja leikluta var munurinn aftur kominn upp í 10 stig, 63-73. Nemanja Sovic var sterkur fyrir gestina og setti nokkrum sinnum niður virkilega erfið skot. ÍR hafði því yfir þegar þriðja leikhluta lauk, 68-77.
Fjölnismenn minnkuðu muninn niður í 4 stig þegar þrjár mínútur voru liðnar af fjórða leikhluta, 77-81, með risa troðslu frá Nathan Walker sem kveikti all hressilega í húsinu. Ekki skemmdi fyrir að James Bartolotta fékk dæmdan á sig ruðning í næstu sókn ÍR. Þegar leikhlutinn var hálfnaður munaði aðeins 3 stigum á liðunum, 84-87 og hiti að færast í leikinn. Gunnar Sverrisson tók leikhlé fyrir ÍR stuttu seinna en þá höfðu heimamenn minnkað muninn niður í 1 stig, 86-87. Kristinn Jónasson átti næstu 4 stig leiksins fyrir ÍR og þegar þrjár mínútur voru eftir höfðu gestirnir aftur náð 7 stiga forskoti, 88-95. Fjölnismenn pressuðu hátt á lokamínútunum sem dugði þó skammt því að leikmenn ÍR voru að setja stóru skotin ofaní. Nemanja Sovic setti niður þrist þegar 30 sekúndur voru eftir af leiknum og gaf mjög lýsandi merki um að nú væri leikurinn dauður, 99-105. ÍR hafði á endanum 8 stiga sigur, 101-109.
Umföllun : Gísli Ólafsson
Mynd : Tomasz Kolodziejski




