HomeFréttirUmfjöllun: Annar sigur Hamars reyndist fjórða tap Vals

Umfjöllun: Annar sigur Hamars reyndist fjórða tap Vals

Hvergerðingar eru heldur betur vaknaðir, unnu sinn annan deildarsigur í röð í Iceland Express deild kvenna í kvöld þegar Hamar lagði Val 61-69 í Vodfonehöllinni. Þetta var fjórða deildartap Vals í röð en jafnframt annar sigur Hamars í röð. Stöllurnar Hannah Tuomi og Samantha Murphy fóru mikinn í Hamarsliðinu en Melissa Leichlitner og Guðbjörg Sverrisdóttir voru báðar með 15 stig í liði Vals.
 
Valsliðið byrjaði mun betur, náði góðri forystu 12-2 eftir 3 mínútur og stefndi í stórsigur Valsliðsins. Lárus þjálfari Hamars tók þá leikhlé og Hamarsliðið kom mun ákveðnara til leiks með Hönnuh Tuomi í fararbroddi. Staðan 16-10 þegar 3:15 mínútur voru eftir af fyrsta fjórðungi. Valsliðið var alltaf á undan og leiddi 20-14 í lok fyrsta leikhluta.
 
Annar leikhluti var í járnum allan tímann en Valsstelpurnar voru alltaf á undan en Hamarsstelpurnar sigu hægt og rólega nær en Hannah Tuomi var stigahæst allra leikmanna á vellinum með 19 stig og áttu Valsstelpurnar virkilega erfitt með að halda henni í skefjum. Valsliiðið hitti eingöngu úr 3 af 15 þriggjastigaskotum í fyrri hálfleik. Melissa Leichlitner var stigahæst í Valsliðinu með 11 stig en hún hélt Samönthu Murphy í eingöngu 4 stigum í fyrri hálfleik.
 
Valsliðið hreinlega hrundi í þriðja leikhluta. En liðið skoraði eingöngu 10 stig í leikhlutanum. Liðið tapaði óteljandi boltum í leikhlutanum og náði aldrei neinum takti. Það gerði hinsvegar Samantha Murphy sem fór hreinlega á kostum í leikhlutanum og skoraði 17 stig af 21 stigi Hamars í leikhlutanum. Hamar jafnar 38-38 og 40-40 en þá sigu Hamarsstúlkur frammúr og leiddu með 11 stiga mun 48-55 í lok þriðja leikhluta.
 
Valsliðið minnkaði muninn fljótlega í fjórða leikhluta í 7 stig 55-62 sem reyndist minnsti munurinn það sem eftir lifði leiks. Valsliði virkaði óöruggt í öllum aðgerðum á lokalekhlutanum og þrátt fyrir ágæta baráttu í sóknarfráköstum náðu þær aldrei að ógna sigri Hamars. Vörn Hamars var sterk og mikil baratta í leikmönnum sem stálu fjölda sendinga Valsliðið kom muninum í 7 stig stuttu fyrir leikslok 60-67 en Hamarsliðið hélt haus og sigraði, lokatölur 61-69.
 
Bestu leikmenn Hamars voru Samantha Murphy sem nánast vann leikinn í seinni hálfleik og Hannah Tuomi sem hélt liðinu inn í leiknum í fyrri hálfleik. Hjá Valsliðinu átti Guðbjörg Sverrisdóttir einna bestan leik en Valsliðið virðist eiga erfitt með að finna taktinn í sínum leik og þrátt fyrir að stefnt hefði í stórsigur liðsins í upphafi leiks þá missti það tökin á leiknum og hleypti Hamarsliðinu inn í leikinn. Hamarsliðið var síðan mun betra liðið í seinni hálfleik og eftir að þær komust yfir í þriðja leikhluta létu þær forystuna aldrei af hendi og unnu verðskuldaðan sigur.
 
Byrjunarlið Vals:
Berglind Karen Ingvarsdóttir, Melissa Leichlitner, Kristrún Sigurjónsdóttir, Guðbjörg Sverrisdóttir, María Ben Erlingsdóttir
 
Byrjunarlið Hamars:
Samantha Murphy, Hannah Tuomi, Bylgja Sif Jónsdóttir, Álfhildur Þorsteinsdóttir, Marín Laufey Davíðsdóttir.
 
 
Stigaskor
 
Valur: Melissa Leichlitner 15/7 stoðsendingar, Guðbjörg Sverrisdóttir 15/4 fráköst, María Ben Erlingsdóttir 12/12 fráköst, Kristrún Sigurjónsdóttir 4/5 fráköst, Þórunn Bjarnadóttir 4/5 fráköst, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 4/4 fráköst, Berglind Karen Ingvarsdóttir 3, Hallveig Jónsdóttir 2/4 fráköst, Signý Hermannsdóttir 2, Súsanna Karlsdóttir 0, María Björnsdóttir 0, Ragnheiður Benónísdóttir 0.
 
Hamar: Hannah Tuomi 26/17 fráköst, Samantha Murphy 25/8 fráköst, Álfhildur Þorsteinsdóttir 6/15 fráköst, Sóley Guðgeirsdóttir 5, Kristrún Rut Antonsdóttir 3, Jenný Harðardóttir 2, Marín Laufey Davíðsdóttir 2/6 fráköst, Rakel Úlfhéðinsdóttir 0, Katrín Eik Össurardóttir 0, Dagný Lísa Davíðsdóttir 0, Bylgja Sif Jónsdóttir 0, Rannveig Reynisdóttir 0.
 
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Gunnar Þór Andrésson
 
Mynd/ Torfi Magnússon
Umfjöllun/ Hannes Birgir Hjálmarsson
Fréttir
- Auglýsing -