HomeFréttirUMFB lagði Patrek í Vestfjarðaslag

UMFB lagði Patrek í Vestfjarðaslag

 
Það var sannkallaður Vestfjarðaslagur í Víkinni í 2. deild karla síðastliðinn laugardag en þá mættust heimamenn í UMFB og lið Patreks, sem samanstendur að miklu leiti af brottfluttum Patreksfirðingum. Fyrir leikinn var Patrekur í öðru sæti í deildinni og höfðu meðal annars veitt Bolvíkingum vænan skell í fyrri leik liðanna í vetur.
Við grípum niður í leiklýsingu af heimasíðu Bolvíkinga þar sem dramatíkin var við völd:
 
Ingi Björn rífur niður frákastið fyrir heimamenn og eftir nokkur brot frá Patreksmönnum þá endar Jón Steinar á vítalínunni þegar ein sekúnda er eftir. Jón Steinar lætur pressuna sig ekki á fá, smellir niður báðum vítunum og kemur heimamönnum þremur stigum yfir, 74-71. Örvæntingafullt lokaskot Patreks geigar svo og því annar sigurleikur Bolvíkinga í röð staðreynd.
 
 
Ljósmynd/ Ingvi Stígsson – ingvi.stigsson.is
Fréttir
- Auglýsing -