spot_img
HomeFréttirU20 ára lið kvenna klárt fyrir Evrópumótið

U20 ára lið kvenna klárt fyrir Evrópumótið

 

KKÍ tilkynnti á dögunum hvaða 12 leikmenn það verða sem leika fyrir Íslands hönd í undir 20 ára Evrópumóti kvenna.

 

Finnur Jónsson, aðalþjálfari U20 ára liðs kvenna, og aðstoðarþjálfari hans Hörður Unnsteinsson hafa valið lið sitt fyrir sumarið sem tekur þátt í Evrópumóti U20 kvenna. Ísland leikur í B-deild Evrópumótsins og fer mótið í ár fram í Oradea í Rúmeníu dagana 7.-15. júlí. 

Þar leikur liðið í B-riðli með Hvíta-Rússlandi, Danmörku, Tyrklandi, Búlgaríu og Tékklandi og eftir riðlakeppnina verður leikið um sæti.

Liðið:

Anna Lóa Óskarsdóttir Haukar
Anna Soffía Lárusdóttir Snæfell
Björk Gunnarsdóttir Njarðvík
Bríet Lilja Sigurðardóttir Skallagrímur
Dagbjört Dögg Karlsdóttir Valur
Hulda Bergsteinsdóttir Njarðvík
Katla Rún Garðarsdóttir Keflavík
Kristín Rós Sigurðardóttir Breiðablik
Magdalena Gísladóttir Haukar
Ragnheiður Björk Einarsdóttir Haukar
Thelma Dís Ágústsdóttir Keflavík
Þórdís Jóna Kristjánsdóttir Haukar

Þjálfari: Finnur Jónsson
Aðstoðarþjálfari: Hörður Unnsteinsson

Fréttir
- Auglýsing -