HomeBónus deildinBónus deild karlaYfirgefur Skagafjörðinn

Yfirgefur Skagafjörðinn

Tindastóll hefur ákveðið að rifta samningi félagsins við bandaríska leikmanninn Ade Murkey, en félagið greindi frá þessu í tilkynningu á samfélagsmiðlum í dag.

Í tilkynningunni þakkar stjórn körfuknattleiksdeildarinnar Murkey fyrir hans framlag til liðsins og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni. Þá kemur fram að unnið sé að næstu skrefum í leikmannamálum á Sauðárkróki og verði þau kynnt um leið og ákvörðun liggur fyrir. 

Fréttir
- Auglýsing -