Haukar hafa samið við þá Alexander Rafn Stefánsson og Eggert Aron Levy um að leika áfram með liðinu á komandi tímabili, en báðir skrifuðu undir nýjan eins árs samning á dögunum.
Þeir Alexander Rafn, sem er 19 ára og 192 sentimetrar á hæð, og Eggert Aron, sem er 20 ára og 191 sentimetri, eru báðir framherjar og uppaldir hjá Haukum þar sem þeir hafa farið í gegnum alla yngri flokka félagsins. Í tilkynningu Hafnarfjarðarfélagsins kemur fram að þeir séu mikilvægur hluti af hinum unga kjarna meistaraflokksliðsins og afar efnilegir leikmenn sem leggi sig ávallt fram.




