spot_img
HomeFréttirU18 konur halda út 16. júlí

U18 konur halda út 16. júlí

Íslenska U18 ára kvennalandsliðið undirbýr sig nú af krafti fyrir Evrópukeppnina í B-deild sem liðið tekur þátt í dagana 17.-27. júlí næstkomandi en B-deildin verður leikin í Rúmeníu. Finnur Jónsson þjálfari liðsins heldur út með hópinn þann 16. júlí og er fyrsti leikur gegn Ísraelum þann 17. júlí.
 
 
U18 liðið mun leika nokkra æfinga leiki hér heima áður en út verður haldið gegn félagsliðum úr yngri flokkum drengja.
 
Leikjaplan U18 ára liðsins í Rúmeníu
 
17. júlí Israel – Ísland
18. júlí frí
19. júlí Island – England
20. júlí Sviss – Ísland
21. júlí Ísland – Danmörk
22.-27. júlí verður síðan spilað í milliriðlum og svo spilað um sæti.
 
U18 hópurinn
 
Margrét Ósk Einarsdóttir framherji Valur
Guðbjörg Ósk Einarsdóttir bakvörður Njarðvík
Sólrún Inga Gísladóttir framherji Haukar
Elínora Einarsdóttir bakvörður Keflavík
Nína Jenný Kristjánsdóttir miðherji FSu
Þóra Kristín Jónsdóttir bakvörður Haukar
Elsa Rún Karlsdóttir miðherji Valur
Guðlaug Björt Júlíusdóttir bakvörður Njarðvík
Sandra Lind Þrastardóttir framherji Keflavík
Sólrún Sæmundsdóttir bakvörður KR
Sara Rún Hinriksdóttir framherji Keflavík
Bríet Sif Hinriksdóttir bakvörður Keflavík
 
Þjálfari. Finnur Jónsson
Aðst.þjálfari Árni Þór Hilmarsson
 
Sjúkraþjálfari. María Björnsdóttir
Farastjóri. Sara Pálmadóttir.
 
Mynd/ KR-ingurinn Sólrún Sæmundsdóttir heldur til Rúmeníu með U18 ára kvennalandsliðinu um miðjan júlímánuð.
  
Fréttir
- Auglýsing -