Undir 16 ára lið Íslands tapaði fyrir Eistland í fyrsta leik Norðurlandamóts þessa árs í Vasalundshallen með 63 stigum gegn 86.
Leikmenn Eistlands voru snöggir af stað inní leikinn, voru eftir aðeins nokkrar mínútur komnir með 9 stiga forystu, sem þeir svo meira og minn héldu í þennan fyrsta leikhluta, en hann endaði í stöðunni 18-26.
Annar leikhlutinn var svo mikið til svipaður. Eistland einfaldlega sterkara á öllum stöðum vallarins. Þegar að liðin héldu til búningsherbergja í hálfleik var forysta þeirra komin í 16 stig, 33-49.
Mestu munaði fyrir Ísland um framlag Hákons Hjálmarssonar í þessum fyrri hálfleik, en hann skoraði 14 stig og tók 4 fráköst.
Í seinni hálfleiknum héldu eistar svo áfram þar sem frá var horfið og bættu stöðu sína ennfrekar fyrir lokaleikhlutann með 26-14 sigri í þeim 3. Staðan því orðin ansi dökk fyrir íslenska liðið og von um sigur í þessum leik.
Í þeim fjórða tóks þeim þó að gera aðeins betur en í þeim 3 sem á undan komu. Sigruðu leikhlutann með 2 stigum, en töpuðu leiknum í heildina með 23, 63-86.
Atkvæðamestur í íslenska liðinu var áðurnefndur Hákon Hjálmarsson, en hann skoraði 15 stig og tók 8 fráköst á þeim 24 mínútum sem hann spilaði í leiknum.
Næsti leikur liðsins er gegn Noregi í fyrramálið kl 09:00, en hægt verður að fylgjast með honum inni á www.kki.is (tölfræði) og að sjálfsögðu fylgir umfjöllun eftir leik héðan af www.karfan.is.
Umfjöllun, myndir & viðtöl / Davíð Eldur




