Undir 16 ára lið Íslands tapaði fyrir Finnlandi í þriðja leik Norðurlandamóts þessa árs í Vasalundshallen með 82 stigum gegn 62. Liðið er því með einn sigur og tvö töp það sem af er móts.
Í byrjun leiks virtust liðin jöfn á flestum vígstöðum, en íslenska liðið þó aðeins á undan. Náðu upp 5 stiga forystu í fyrsta leikhlutanum sem Finnland skar þó niður og fór leikhlutinn 14-12 fyrir Ísland.
Í öðrum var Finnland hinsvegar ekki lengi að snúa því tafli sér í vil og þegar að hlutinn var hálfnaður voru þeir komnir með 10 stiga forystu í 20-30. Eftir það hélst sá munur og þegar liðin héldu til búningsherbergja í hálfleik var staðan 41-32, Finnlandi í vil.
Atkvæðamest fyrir Ísland í þessum fyrri hálfleik var Katla Rún Garðarsdóttir með 8 stig, 3 stolna bolta og 3 fráköst (Var reyndar þegar þarna var komið við sögu einnig með 4 villur á bakinu)
Eftir hléið hélt Finnland áfram að bæta við forskot sitt og voru fyrir lokaleikhlutann komnir með forystuna upp í 20 stig í stöðunni 64-44. Fyrir þá væri að miklu leyti hægt að stimpla þetta á þá virkilega sterku vörn sem þeir spiluðu, en þegar þarna er komið við sögu hefur Ísland tapað 31 bolta á móti aðeins 13 töpuðum Finnlands.
Í lokaleikhlutanum reyndi Ísland allt hvað það gat til þess að vinna niður þetta forskot sem Finnland hafði byggt upp og tókst það að einhverju leyti, en allt kom fyrir ekki. 20 stig var munurinn í lokin.
Leikurinn endaði með 82-62 tapi Íslands.
Atkvæðamestur í íslenska liðinu var Þóranna Kika Hodge Carr með 11 stig og 4 fráköst á þeim 13 mínútum sem hún spilaði í leiknum.
Næsti leikur liðsins er gegn Svíþjóð á morgun, en hægt verður að fylgjast með honum inni á www.kki.is (tölfræði) og að sjálfsögðu fylgir umfjöllun eftir leik héðan af www.karfan.is.
Umfjöllun, myndir & viðtöl / Davíð Eldur




