21:59
{mosimage}
Haukar lyftu sér úr botnsæti Iceland Express deildar karla í kvöld með 78-72 sigri á Fjölni. Haukakonur unnu svo nauman sigur á ÍS í Iceland Express deild kvenna, 68-62.
Með sigrinum eru Haukakonur enn með forystu í kvennaboltanum en Haukakarlar hafa komið sér úr botnsætinu þar sem Fjölnismenn dúsa nú.