Körfuboltaáhugafólk fær tvöfalda Þórsaraviðureign í dag þegar Þór Akureyri og Þór Þorlákshöfn mætast í tveimur leikjum í 1. deildinni.
Dagurinn hefst í 1. deild kvenna þar sem liðin eigast við klukkan 15:30. Að þeim leik loknum taka karlalið félaganna við keflinu í 1. deild karla og hefst sú viðureign klukkan 18:00.




