Það verður nóg um að vera í Schenker höllinni, Ásvöllum, í kvöld þegar Haukar taka á móti Snæfelli í Domino‘s deildum karla og kvenna. Valitor, sem nýverið flutti höfuðstöðvar sínar í Hafnarfjörð, ætlar að bjóða öllum frítt á leikina og því kjörið tækifæri til að leggja leið sína í Hafnarfjörðinn í kvöld.
Stúlkurnar ríða á vaðið og hefst leikur þeirra kl. 18 en leikur drengjanna hefst kl. 20. Á milli leikja verða Haukamenn með grillið opið og hefur Gunnar, grillmeistari Hauka, fengið með sér valinkunna menn sér til aðstoðar. Marel Örn Guðlaugsson, leikjahæsti leikmaður Íslandsmótsins frá upphafi, verður Gunna til halds og trausts og Gunnar Svanlaugsson, formaður og grillmeistari Snæfellinga, mun einnig standa vaktina. Að sjálfsögðu er grillið opið fyrir alla sem vilja og bjóða Haukar Snæfellinga sérstaklega velkomna.




