Tryggvi Snær Hlinason skilaði glæsilegri tvennu, tólf stigum og tíu fráköstum á 22 mínútum, þegar lið hans Bilbao mátti þola svekkjandi tap gegn Leyma Coruna í ACB deildinni á Spáni.
Úrslitin réðust eftir framlengingu þar sem Bilbao laut í lægra haldi með aðeins þriggja stiga mun, 104:101. Eftir tvo fyrstu leiki tímabilsins er Bilbao með einn sigur og eitt tap.




