spot_img
HomeFréttir„Tveir af dómurunum eru ekki starfi sínu vaxnir.“

„Tveir af dómurunum eru ekki starfi sínu vaxnir.“

Jóhann Þór Ólafsson þjálfari Grindavíkur var ekkert að hengja haus þrátt fyrir nítján stiga tap gegn KR í kvöld. „Við vorum góðir í 30 mínútur en fjaraði svo út í loka leikhlutanum.“ sagði Jóhann meðal annars um frammistöðu síns liðs. Jóhann hafði ýmislegt um dómgæslu leiksins að segja og sagði meðal annars: „vill segja sem minnst en tveir dómarar eru hreinlega ekki starfi sínu vaxnir.“

 

Ægir Þór Steinarsson leikmaður KR var sáttur með að ná sigri en viðurkenndi að hann hefði haft smá áhyggjur af frammistöðu liðsins í fyrri hálfleik. Framundan er ferðalag til Sauðárkróks hjá KR og sagði Ægir um það: „þetta verður erfitt en hrikalegt stuð.“

 

 

Viðtöl / Ólafur Þór Jónsson

Fréttir
- Auglýsing -