spot_img
HomeFréttirTryggvi: Hættum aldrei að berjast

Tryggvi: Hættum aldrei að berjast

20:00

{mosimage}
(Tryggvi í baráttunni við Hlyn í dag)

Snæfell vann Fjölni í dag í úrslitum Lýsingarbikarsins. Tryggvi Pálsson framherji Fjölnis skoraði 6 stig í leiknum en þessi ungi Fjölnismaður var að spila sinn fyrsta bikarúrslitaleik í meistaraflokki.

,,Þeir settu allt ofaní,” sagði Tryggvi um Snæfells sem fór á kostum í seinni hálfleik. ,,Við stigum ekki út vörnin okkar var glötuðu. Þeir voru að taka fjögur og fimm skot í hverri sókn. Það er aldrei gott og endar oftast með körfu. Varnarleikurinn var ekki að ganga upp.”

Snæfell stakk af í seinni hálfleik og Tryggvi vildi ekki meina að hans menn hættu að trúa á að það sem þeir voru að gera. ,,Við duttum aðeins niður en hættum aldrei að berjast. Þetta fór eins og það fór.”

[email protected]

Mynd: [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -