spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi drjúgur er Zaragoza tryggði sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildarinnar

Tryggvi drjúgur er Zaragoza tryggði sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildarinnar

Landsliðsmiðherjinn Tryggvi Snær Hlinason og félagar hans í Casademont Zaragoza lögðu í kvöld lið Iberostar Tenerife í Aþenu með 6 stigum, 87-81 og tryggðu sér það með sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Tryggvi skilaði flottum leik fyrir sína menn, 11 stigum og 7 fráköstum á 22 mínútum spiluðum.

https://www.instagram.com/p/CFz_sXVoVCN/?igshid=1mwbq7oizlt3r

Næst mæta Zaragoza liði AEK Aþenu í undanúrslitunum, en sigurvegari þeirra mætir svo annað hvort Dijon eða Burgos í úrslitunum.

Fréttir
- Auglýsing -