Veigar Páll Alexandersson, lykilmaður Njarðvíkur, hefur verið úrskurðaður í tólf mánaða keppnisbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi í vor og spilar því ekki með liðinu á þessari leiktíð. Frá þessu er greint á vefmiðlinum Vísi þar sem birt er yfirlýsing kappans.
Í yfirlýsingunni útskýrir Veigar að ADHD-lyf, sem hann tók vegna próflestrar í vor, hafi mælst í sýni hans. Bannið reiknast frá próftökudegi og rennur út 11. maí næstkomandi. Hann kveðst miður sín yfir að hafa brugðist félaginu og liðsfélögum sínum og hefur beðist afsökunar á mistökunum. Þá þakkar hann lyfjanefnd fyrir mildari dóm en venja er, enda hafi legið fyrir að brotið var ekki framið til að auka getu á vellinum.
Hinn 25 ára gamli bakvörður hyggst nú einbeita sér að námi og líkamlegri þjálfun áður en hann snýr aftur á gólfið með Njarðvík næsta vor.




