Þó fátt hafi verið um fína drætti í leik íslenska liðsins gegn Póllandi í dag, þá náði FIBA að finna þetta myndbrot af "no-look" sendingu leikstjórnandans Elvars Más Friðriksonar á Kristófer Acox og birta hana bæði á vefsíðu sinni, sem og á samskiptamiðlum.
Elvar spilaði lítið í leik dagsins, eða rétt tæpar þrjár mínútur. Hann nýtti tíma sinn þó vel, en þessi sending er ein þriggja stoðsendinga (hæstur í íslenska liðinu í dag) sem kappinn gaf gegn Póllandi.
Mynd / Fiba