HomeÚti í heimiEuroleagueNBA undirbýr risasjóð til að lokka stærstu fótboltafélög Evrópu í NBA Europe

NBA undirbýr risasjóð til að lokka stærstu fótboltafélög Evrópu í NBA Europe

NBA-deildin vinnur nú að því að setja á laggirnar innviðasjóð upp á milljarða dollara til að greiða götu nýrrar Evrópudeildar, NBA Europe, sem stefnt er að því að hefji göngu sína árið 2027.

Samkvæmt frétt Sky News verður sjóðurinn fjármagnaður af hópi stórra alþjóðlegra fjármálastofnana. Markmiðið er að styðja við uppbyggingu íþróttahalla og sannfæra stærstu fótboltafélög álfunnar – þar á meðal Real Madrid, Barcelona, Paris Saint-Germain og AC Milan – um að taka þátt í keppninni.

Viðræður hafa staðið yfir undanfarna mánuði milli forsvarsmanna NBA og fulltrúa þessara félaga, auk Bayern München. Á meðan Real Madrid, Barcelona og Bayern reka nú þegar öflug lið í EuroLeague gætu PSG og AC Milan komið að uppbyggingu nýrra liða frá grunni. Sjóðurinn er ætlaður til að leysa eina stærstu hindrunina fyrir fjárfesta, sem er hár kostnaður við byggingu nútímalegra keppnishalla.

Mark Tatum, aðstoðarforseti NBA, lagði nýlega áherslu á mikilvægi þessara fjárfestinga og sagði stofnun deildarinnar myndu hleypa af stað gríðarlegri uppbyggingu innviða í Evrópu.

Fyrirhugað er að í NBA Europe leiki sextán lið; tólf lið með fast sæti og fjögur sem vinna sér inn þátttökurétt í gegnum undankeppni. Þá hefur mögulegt lið í London þegar vakið áhuga stórra fjárfestahópa, þar á meðal hóps sem samanstendur af Liberty Global og Daniel Levy, fyrrverandi stjórnarformanni Tottenham Hotspur.

Fréttir
- Auglýsing -