HomeBónus deildinBónus deild kvennaLandsliðskonan unga heldur vestur um haf

Landsliðskonan unga heldur vestur um haf

Landsliðskonan unga Rebekka Rut Steingrímsdóttir hefur skrifað undir samning við bandaríska háskólaliðið San José State University (SJSU) og mun leika með liðinu í 1. deild háskólaboltans vestanhafs á næsta tímabili.

Skólaliðið tilkynnti um komu hennar á samfélagsmiðlum í kvöld með orðunum: „Frá landi íss og elds – velkomin í fjölskylduna“.

Rebekka, sem er 18 ára bakvörður og uppalin í KR, hefur átt frábært tímabil með uppeldisfélagi sínu í Bónusdeild kvenna í vetur. Í fyrstu sex leikjum tímabilsins hefur hún skorað 17,5 stig, tekið 5,0 fráköst og gefið 5,0 stoðsendingar að meðaltali í leik, auk þess að skila 18,8 framlagsstigum.

Þá hefur Rebekka einnig stimplað sig rækilega inn í íslenska A-landsliðið að undanförnu og lék með liðinu í nýafstöðnum landsleikjaglugga í undankeppni EM 2029, þar sem hún skoraði meðal annars 10 stig og gaf 6 stoðsendingar í stórsigri Íslands á Aserbaídsjan á Ásvöllum í kvöld.

Fréttir
- Auglýsing -