HomeFréttirTindastóll komnir í úrslit

Tindastóll komnir í úrslit

Haukar og Tindastóll áttust við í kvöld í fjórða leik þeirra í undanúrslitum í Schenkerhöllinni. Haukarnir gerðu góða ferð norður í síðasta leik og eigðu von um að næla sér í oddaleik á Föstudaginn. Leikurinn einkenndist af miklum varnarleik og gríðarlegum barningi inn í teignum. Tindastóll komust snemma 4-6 stigum yfir og náðu að halda því meira eða minna út leikinn þó svo að Haukarnir hafi alltaf komið til baka og jafnvel verið líklegir til að koma sér yfir. En gestirnir héldu út hvert eitt og einasta áhlaup heimamanna og komu sér alltaf yfir aftur og tryggðu sér sæti í úrslitum með 62-69 sigri og þar með 3-1 í einvíginu

 

Gríðarlega hátt spennustigið í upphafi leiks er liðin skiptust á körfum. Haukar spiluðu mjög góða vörn og áttu Stólarnir erfitt með að finna góð skotfæri en þeir voru hins vegar einkar klókir að grípa sóknarfráköst. Tindastóll spilaði ekki síður góður vörn og eftir að Haukarnir áttu greiða leið að körfunni á upphafs mínútunum þá settu þeir allt í lás og voru heimamennirnir stigalausir í rúmar þrjár mínútur. Tindastóll komust sex stigum yfir í stöðunni 10-16 er Myron Dempsey hoppaði yfir alla og tróð viðstöðulaust eftir sóknarfrákast. Haukar bættu við körfu áður en leikhlutanum lauk og staðan því 12-16 að loknum 10 mínútum. Darrel Keith Lewis var atkvæðamikill fyrir Tindastól og var hann með 8 stig í fyrsta leikhlutanum.

 

Darrel Keith Lewis hóf annan leikhlutann á körfu og víti að auki og kom hann stólunum 7 stigum yfir áður en Hjálmar Stefánsson svarði með því að smella niður fyrstu þriggjastigakörfu leiksins. Gestirnir komust átta stigum yfir og virtist meðbyrinn ætla að blása myndarlega í segl þeirra en þá skoraði Hjálmar Stefánsson 5 stig í röð fyrir Haukanna til að koma leiknum í 23-26. Þá urðu aftur skarpar vindbreytingar og Helgi Freyr Margeirsson og Myron Dempsey komu Stólunum í 23-34, en vörnin hjá gestunum var heimamönnum gríðarlega erfið á þeim kafla. Haukarnir komust þó í gírinn og enduðu fyrri hálfleikinn á 9-3 kafla til að laga stöðuna í 32-37 í hálfleik.
Atkvæðamestir hjá Haukunum í fyrri hálfleik voru Alex Francis og Hjálmar Stefánsson með 8 stig hvor og hjá gestunum voru það Darrel Keith Lewis og Myron Dempsey voru með 11 stig hvor.

 

Seinni hálfleikur hófst eins og sá fyrri á gríðarlega harðri vörn beggja vegna. Voru aðeins komin 6 stig á töfluna eftir fjögurra mínútna leik og voru það Stólarnir sem höfðu yfirhöndina 34-41. Haukarnir náðu þá 5-0 áhlaupi en Tindastóll voru fljótir að svara því með tveimur körfum í röð strax á eftir. Eftir tvo tapaða bolta í röð hjá Tindastól þá bombaði Helgi Freyr Margeirsson niður þrist til að koma Stólunum aftur í gírinn og þeim í 41-50. Haukar áttu þá magnaðan endasprett á leikhlutanum þar sem þeir skoruðu 8 stig gegn 1 stigi Tindastóls og staðan því 49-51 fyrir loka leikhlutann.

 

Stólarnir hófu leika 4-0 í upphafi fjórða leikhluta og leiddu því 49-55 eftir rúma mínútu. Eftir töluverðan barning jöfnuðu Haukarnir 55-55 þegar Alex Francis stal boltanum úr innkasti og komst einn og óvaldaður í hraðaupphlaup sem endaði með iðnaðartroði. Pétur Rúnar Birgisson svaraði því með hörku þrist og Darrell Flake bombaði síðan niður öðrum þrist og kom Tindastól í 57-61. Gestirnir voru ekki hættir og Darrel Keith Lewis setti 4 stig í röð þannig að gestirnir voru 57-65 yfir með tvær mínútur til leiksloka. Kristinn Marinósson setti þá þrist fyrir Haukanna til að gefa þeim smá vonarglætu en Pétur Rúnar Birgisson sá síðan til þess að tryggja Stólunum sigur með því að ná frákasti eftir eigið skot og finna Myron Dempsey undir körfunni og skora síðan sjálfur í næstu sókn til að klára leikinn 62-69.

 

 

Tölfræði leiksins

Myndasafn eftir Axel Finn Gylfason

 

 

 

 

 

Fréttir
- Auglýsing -