Fimm leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt og unnu Chicago Bulls sinn þriðja leik í röð er liðið burstaði Washington Wizards í höfuðborginni. Lokatölur í viðureign Wizards og Bulls voru 77-105 Bulls í vil þar sem Derrick Rose og Luol Deng voru báðir með 21 stig í liði Bulls. Rose bætti við 9 stoðsendingum en hjá Wizards var nýliðinn John Wall með 9 stig og 10 stoðsendingar og Andray Blatche var stigahæstur með 15 stig og 11 fráköst. Ósigur Wizards í nótt var þeirra fjórtándi í síðustu sextán leikjum!
Önnur úrslit næturinnar:
New Jersey 103-104 Phoenix
Denver 100-90 Atlanta
Utah 102-107 Boston
Sacramento 105-99 LA Clippers
Mynd/ Joakim Noah er kominn á fullt með Bulls að nýju eftir meiðsli.





