Það var nóg að gera vestanhafs í nótt en alls fóru 12 leikir fram í NBA deildinni. Leikmenn Chicago Bulls og Orlando Magic gáfu áhorfendum í Amway Center heilan haug fyrir peninginn en framlengja þurfti leikinn þrisvar sinnum til að skera úr um sigurvegara. Að lokum hafði Bulls betur 128-125 og hefur liðið nú unnið þrjá af þeim fjórum leikjum síðan þeir fluttu Luol Deng til Cleveland. Á sama tíma hefur Magic tapað níu leikjum í röð.
Boozer, Noah og Butler fóru fyrir liði Chicago en saman skoruðu þeir 70 stig. Noah var stigahæstur Bulls með 26 stig og 19 fráköst og Boozer bætti við 23. Nýliðinn Tony Snell kom sterkur af bekknum hjá Bulls og gerði 15 stig og tók 7 fráköst.
Hjá Magic var Victor Oladipo öflugur með 35 stig og 8 stoðsendingar og Jameer Nelson bætti við 31 stigi og gaf 10 stoðsendingar.
Greg Oden gat loksins verið með liði Miami Heat þegar þeir mættu Washington Wizards en þetta er fyrsti leikur hans síðan 5. desember 2009. Oden spilaði 8 mínútur í leiknum og gerði 6 stig og leið bara vel í hnénu að eigin sögn. Miami hins vegar tapaði leiknum 114-97 og er þetta í fyrsta skiptið síðan í byrjun árs 2012 sem að Miami tapar þremur leikjum í röð.
John Wall var stigahæstur í liði Washington með 25 stig og 9 stoðsendingar en alls voru það sjö af 11 leikmönnum liðsins sem fóru yfir 10 stiga múrinn.
Hjá Miami var Chris Bosh með 26 stig og 7 fráköst og LeBron James bætti við 25 stigum, 8 fráköstum og 7 stoðsendingum.
FINAL
7:00 PM ET
CHI
128
W
ORL
125
| Q1 | Q2 | Q3 | Q4 | F | |||
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| CHI | 26 | 20 | 27 | 28 | 128 | ||
|
|
|
|
|
|
|
|
|
| ORL | 20 | 29 | 31 | 21 | 125 |
Triple Overtime
| Game Stat | FG% | 3P% | FT% | REB | TO |
|---|---|---|---|---|---|
| CHI |
Fréttir |






