Brittanny Dinkins náði í sína fyrstu þrennu í dag í tapi gegn Haukum. Hún var með 23 stig, 13 fráköst og 13 stoðsendingar. Hún bætti einnig við 6 stolnum boltum.
Þetta var jafnframt fjórða þrenna tímabilsins þar sem Helena Sverrisdóttir, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir og Danielle Victoria Rodriguez hafa allar náð þrennum líka.
Engar þrennur hafa látið dagsins ljós — enn sem komið er — í úrvalsdeild karla, né 1.deildum karla og kvenna.
Domino's deild kvenna:
18/10/2017 – Helena Sverrisdóttir, Haukar – 11 stig, 16 fráköst og 13 stoðsendingar – Sigur
18/10/2017 – Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Skallagrímur – 19 stig, 10 fráköst og 10 stoðsendingar – Sigur
21/10/2017 – Danielle Victoria Rodriguez, Stjarnan – 31 stig, 14 fráköst og 12 stoðsendingar – Sigur
28/10/2017 – Brittanny Dinkins, Keflavík – 23 stig, 13 fráköst og 13 stoðsendingar – Tap
Þrennukóngar og -drottningar ársins 2018:
Helena Sverrisdóttir, Haukar: 1
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Skallagrímur: 1
Danielle Victoria Rodriguez, Stjarnan: 1
Brittanny Dinkins, Keflavík: 1




