HomeFréttirÞórsarar höfðu betur í Hafnarfirði

Þórsarar höfðu betur í Hafnarfirði

Það var stál í stál í Hafnarfiðinum í kvöld þegar Haukar tóku á móti Þór frá Þorlákshöfn og kannski ekki við öðru að búast enda lítil ást sem hefur verið á milli þessara liða. Haukar leiddu með 5 stigu eftir fyrsta, 25-20, og einu, 38-37, í hálfleik. Munurinn á liðunum var sáralítill í helstu tölfræði þáttum og var mesti munur á liðunum fimm stig.

Þórsarar komust yfir um miðjan þriðja leikhluta en Haukar svöruðu með stæl og leiddu með tveimur stigum fyrir lokaleikhlutann, 64-62. Þórsarar áttu hins vegar flottan kafla í fjórða leikhluta sem skilaðið þeim góðum 77-82 sigri í Schenker-höllinni

Þáttaskil
Haukar fóru oft illa að ráði sínu í fjórða leikhluta og til að mynda kveiktu þeir í tvígang í skotklukkunni á stuttum kafla. Á sama tíma áttu Þórsarar fínan kafla þegar þeir náðu sjö stiga forskoti á Haukana en það var mestur munurinn á liðunum í leiknum.

Tölfræðin lýgur ekki
Þó jafnt hafi verið á nánast öllum tölfræði þáttum liðanna þá er staðreyndin sú að Þór vara að hitta heilt yfir betur en Haukar úr skotum sínum utan að velli. Þórsarar voru einnig með tveimur fleiri fráköst en Haukar og töpuðu fjórum færri boltum.

Hetjan
Það er ekki hægt að „pin pointa“ einhverja eina hetju úr röðum Þórs. Tobin skilaði sínum tæpum 30 stigum að vanda en mögulega er hægt að benda á að breidd Þórs var töluvert meiri þar sem þeir fengu 22 stig af bekknum á meðan bekkurinn frá Haukum skoraði aðeins sex stig.

Kjarninn
Haukar þurfa að henda sér í góða leikgreiningu á lokamínútum jafnra leikja en annan leikinn í röð má segja að þeir hafi verið sjálfum sér verstir undir lokinn. Illa útfærðar sóknir í síðustu tveimur leikjum hafa gert það að verkum að þeir eru aðeins með tvö stig eftir þrjár umferðir í stað mögulegra sex.

Fréttir
- Auglýsing -