spot_img
HomeFréttirÞóranna og Gaels náðu í fyrsta sigur vetrarins í kvöld

Þóranna og Gaels náðu í fyrsta sigur vetrarins í kvöld

Þóranna Kika Hodge Carr og Iona Gaels lögðu í kvöld lið Rider Broncs í bandaríska háskólaboltanum, 41-56. Leikurinn sá fyrsti sem Gaels vinna í vetur, en áður höfðu þær tapað fjórum.

Þóranna setti fjögur stig af bekknum í leik kvöldsins, en hún setti niður bæði vítin sem hún tók í leiknum, sem og eina skotið af vellinum. Gaels leika næst komandi þriðjudag 22. desember gegn Sacred Heart Pioneers

Tölfræði leiks

https://twitter.com/IonaWBB/status/1340098467407007746?s=20
Fréttir
- Auglýsing -