HomeFréttirRýnt í skóinn: Way of Wade 808 6 Ultra

Rýnt í skóinn: Way of Wade 808 6 Ultra

Körfuboltaáhugafólk á Íslandi fær nú loksins tækifæri til að prófa einhverja heitustu körfuboltaskó dagsins. Way of Wade 808 6 Ultra eru mættir í hillurnar hjá Wodbúð í Skeifunni, en skórinn hefur vakið gríðarlega athygli vestanhafs og er af mörgum talinn verðugur arftaki goðsagnarkenndra módela á borð við Kobe 8. Við rýndum í tæknina og eiginleika skósins.

808 6 Ultra kom út seint í sumar og býr yfir öllum bestu eiginleikum Way of Wade merkisins. Þar má sérstaklega nefna:

  • Super Boom dempun
  • Carbon fiber plötu
  • Gríðarlega gott grip

Gripið

Gripið er líklega það sem hefur alltaf heppnast hvað best í 808-línunni í gegnum árin, og 808 6 Ultra er engin undantekning. Ytri sólinn er gerður úr GCU-efninu, sem er sérhannað af Way of Wade, og nær efnið yfir allan sólann. Skórinn er með árásargjarnt herringbone-mynstur og snúningspunkt fremst. 808 6 Ultra svíkur engan þegar kemur að gripinu.

Mýktin

808 6 Ultra kemur með svokölluðu „drop-in“ innleggi sem er gert úr Super BOOM efninu, en það er eitt það besta á markaðnum í dag. Það veitir ofurmýkt með auknum þéttleika á græna svæðinu sem styður enn betur við fótinn. Mýktin í þessum skóm er rosaleg; skórinn er mjög fjaðrandi („bouncy“) og verndar vel gegn höggum í lendingum. Eini gallinn er að líklega er erfitt að nota sérsniðin innlegg nema setja þau beint ofan á þetta innlegg.

Efnið

808 6 Ultra er með Ultra Shell efni að ofan, sem er blanda af textíl, TPU og „hot melt“ efnum. Létt, andar vel, þægilegt og endingargott. Efnin hreyfast með fætinum og veita góðan stuðning.

Þá er skórinn búinn Carbon fiber plötu í bland við TPU-plötu sem styður við fótinn og nýtir orkuna betur í hverju skrefi. Carbon fiber plötur eru þekktar úr keppnishlaupaskóm fyrir að hámarka orkuendurheimt og „skjóta“ manni áfram í skrefinu.

Hællinn er með Light Foam Ultra heel cup – innri hælstuðning ásamt TPU-styrkingu í hælnum.

Stærð

Wade 808 6 Ultra kemur í hefðbundnum stærðum og er „true to size“. Hann situr gríðarlega þétt og þægilega á fæti, án óþægilegra hreyfinga eða nudds. Flestir velja sína venjulegu stærð eða fara mögulega upp um hálfa stærð.

Stuðningur

Með Carbon fiber plötunni, TPU-plötunni í fremri hluta sóla, hælstuðningnum og fleiru býður 808 6 Ultra upp á gríðarlega mikinn stuðning. Fremri platan veitir sérstaklega góðan hliðarstuðning við snöggar stefnubreytingar.

Niðurstaða

Way of Wade 808 6 Ultra stendur sig ótrúlega vel á alla kanta: frábært grip, mýkt, snið og stuðningur. Skórnir eiga margt sameiginlegt með upprunalegu Kobe 8 en bjóða upp á enn betri mýkt. Fyrir þá sem leita að léttum og hröðum körfuboltaskóm með „drop-in“ innleggi er 808 6 Ultra klárlega með því allra besta á markaðnum.

Lentir í Wodbúð

Vertu með þeim fyrstu til að prófa Way of Wade skóna á Íslandi. Þeir eru mættir í Wodbúð.

Við mælum með að kíkja við í Faxafeni 12 og máta!

Fréttir
- Auglýsing -