HomeNeðri deildir1. deild karlaÖruggur sigur Þórs Þorlákshafnar á Akureyri

Öruggur sigur Þórs Þorlákshafnar á Akureyri

Vel heppnaðri körfuboltahelgi á Akureyri lauk í kvöld þegar Þór Akureyri tók á móti Þór Þorlákshöfn í 1. deild karla. Gestirnir unnu öruggan 39 stiga sigur en stigaskorið leiddi Djordje Dzeletovic með 32 stigum. Þar á eftir var Joey Holifield með 19 stig og Jovan Sljivancanin með 15. Fyrir heimamenn var Justin Andrew stigahæstur með 24 stig og skoraði Pétur Cariglia 14.

Gestirnir byrjuðu vel og skoruðu 20 stig á móti 9 stigum heimamanna á fyrstu 5 mínútunum. Seinni helmingur leikhlutans var þó nokkuð jafn en hann endaði 19-32 Þorlákshöfn í vil og var Djordje Dzeletovic með helming stiga gestanna í fyrsta leikhluta.

Í öðrum leikhluta bættu gestirnir hægt en örugglega við muninn en Páll Nóel Hjálmarsson lokaði fyrri hálfleik fyrir heimamenn með flautukörfu frá miðjum vellinum og staðan í hálfleik 38-56.

Leikurinn hélt áfram í svipuðum dúr og sigldu gestirnir sigrinum heim af miklu öryggi. Lokatölur 82-121.

Tölfræði leiks

Umfjöllun / Birkir H

Fréttir
- Auglýsing -