HomeFréttirÞór vann þrjá æfingaleiki í röð

Þór vann þrjá æfingaleiki í röð

Liðsmenn Þórs Akureyri virðast í góðum gír þessi dægrin en um helgina vann liðið þrjá æfingaleiki gegn öðrum 1. deildarliðum. Fyrstu andstæðingarnir voru Skagamenn en sá leikur fór 72-84 fyrir Þór. Á laugardag mætti svo liðið FSu í hörkuleik sem lauk með sigri Þórs 77-80.
Í gær léku svo Þórsarar gegn Val. Þórsliðið var lengst af yfir í leiknum og eftir fyrsta fjórðung leiddi liðið með sex stigum 20-26. Valsmenn komu svo til baka og náðu að jafna leikinn og jafnt var í hálfleik 41-41. Þórsarar komu grimmir til leiks í þriðja leikhluta og náðu aftur foyrstu og leiddu með 7 stigum þegar fjórði og síðasti leikhlutinn hófst 57-64. Fór svo að Þórsarar lönduðu 8 stiga sigri 78-86. Stigahæstur Þórs var Elías Kristjánsson með 20 stig, Bjarni Árna með 17, Darko Milosevic 12, Ólafur Aron Ingvarsson11, Sindri Davíðsson 8, Björn Benediktsson og Vic Ian Damasin 7 hvor og Helgi Hrafn Halldórsson 6.
 
www.thorsport.is
  
Fréttir
- Auglýsing -