HomeFréttirÞór tók stórt skref í átt að úrvalsdeild í kvöld

Þór tók stórt skref í átt að úrvalsdeild í kvöld

Þór Akureyri sótti 2 gríðarlega stór og mikilvæg stig á Hlíðarenda í kvöld þegar þeir sigruðu Val með 8 stigum, 89-97.  Þór leiddi allan leikinn og virtust eiga svör við öllum tilraunum Vals til þess að taka frumkvæðið í leiknum.  Andrew Jay var atkvæðamestur í liði gestanna með 23 stig, 10 fráköst og 8 stoðsendingar en næstu menn voru Elías Kristjánsson með 22 stig og Danero Thomas með 17 stig og 12 fráköst.  Hjá Val var Jamie Stewart stigahæstur með 27 stig og 9 fráköst en næstu menn voru Leifur Steinn Arnarson með 14 stig og Benedikt Blöndal með 13 stig.  

Fyrsti leikhluti spilaðist hratt og gestirnir sóttu hratt á Valsmenn sem skilaði þeim fljótt 5 stiga forskoti og frumkvæðinu í leiknum.  Þristunum rigndi niður og settu liðin samanlagt 7 þrista í fyrsta leikhluta, 3 hjá Val og 4 hjá Þór Akureyri.  Það munaði aðeins tveimur stigum á liðunum þegar leikhlutanum lauk, 25-27. 

 

Þór byrjaði annar leikhluta mun betur og settu stóru skotin niður á meðan Valsarar virtust á köflum smá pirraðir, leituðu mikið undir körfuna þar sem Danero Thomas, Þröstur Leó og Tryggvi voru að gera þeim lífið leitt með flottum varnarleik.  þegar Þröstur Leó og Elías höfðu sett sitt hvorn þristinn og aukið forskot gestanna í 10 stig 25-35, tók Ágúst Björgvins leikhlé fyrir Val.  Þór keyrði hraðan upp og sóttu hvert hraðaupphlaupið á fætur öðru sem skilaði þeim þó ekki miklu því það voru þristarnir sem duttu hver á fætur öðrum sem hélt forskotinu.  Þegar þrjár og hálf mínúta var eftir af leikhlutanum tók Ágúst annað leikhlé í stöðunni 35-40.  Þór var að hitta mjög vel fyrir utan og voru gríðarlega fljótir að refsa þegar og komu sér í 12 stiga forskot í stöðunni 39-51 ein mínúta var eftir.  Valsmenn svöruðu því með 7 stigum á seinustu mínútunni og munaði því aðeins 5 stigum á liðunum þegar flautað var til hálfleiks, 46-51.  

 

Stigahæstur í liði Þórs í hálfleik var Andrew Jay með 12 stig en næstu menn voru Elías Kristjánsson með 11 stig og Danero Thomas með 8 stig.  Hjá Val var Leifur Steinn Arnarson með 12 stig og næstu menn voru Jamie Stewart með 10 stig og Friðrik Þjálfi Stefánsson með 9 stig.  

 

Þór átti fyrstu 4 stigin í annars rólegri byrjun í þriðja leikhluta og Valsmenn áttu ekki svar við því fyrr en eftir þrjár mínútur af leik, 48- 55. Þór bætti hægt og rólega í með því að skila boltanum ofaní og loka vel á sóknartilburði Valsmanna.  Þegar þrjár mínútur voru eftir af þriðja leikhluta munaði 10 stigum á liðunum, 56-66.  Valsmenn skiptu yfir í svæði og pressuðu gestina hátt þegar leið á leikhlutan Það var farið að hitna svolítið í húsinu og pressa heimamanna skilaði ágætis árangri.  Það reyndist Valsmönnum hins vegar mjög erfitt að gera leik úr þessu því Þór hélt alltaf í 7-10 stiga forskot. Þegar flautað var til loka leikhlutans höfðu gestirnir 7 stiga forskot, 65-72.  

 

Danero Thomas opnaði fjórða leikhluta með þrist sem söng í netinu og gestirnir fylgdu eftir og juku forskotið sitt hægt og rólega fyrstu mínúturnar í fjórða leikhluta.  Þegar fjórar mínútur voru liðnar munaði 11 stigum á liðunum, 72-83.  Þór lét ákafan varnarleik Vals lítið á sig fá og héldu forskotinu í kringum 10 stig allt fram á lokamínúturnar.  Það var sama hvað Valur bauð uppá þá hafði Þór alltaf svar.  Gestirnir sygldu sigrinum svo heim nokkuð örugglega 89-97.  

 

umfjöllun : Gísli Ólafsson

Mynd: úr safni 

Fréttir
- Auglýsing -