Gary Williams þjálfari Hauks Helga Pálssonar hjá Maryland er svekktur yfir stöðu mála en eftir að Maryland datt út í úrslitakeppninni gegn Duke skólanum er orðið ljóst að ekkert annað boð hefur borist á mót sem jafnan eru haldin fyrir lið sem falla út úr NCAA keppninni.
,,Eftir 19 sigra m.a. gegn Penn State, Florida State og Clemson eru það vonbrigið að vera ekki einu sinni boðið á NIT mótið,“ sagði Williams í gær og bætti svo við að þetta væri furðulegt þar sem Maryland hefði unnið fyrsta leikinn í úrslitakeppni ACC riðilsins og lent svo í hörkuleik gegn Duke í 35 mínútur.
,,Við lögðum mikið á okkur fyrir þessa 19 sigra á tímabilinu en bíðum nú bara spenntir eftir næstu leiktíð,“ sagði Williams en Maryland lauk leiktíðinni með 19 sigra og 14 tapleiki. Maryland hafa unnið minnst 19 leiki síðustu 15 leiktímabil í röð!
Haukur Helgi var á sínu fyrsta ári með skólanum og óx heldur betur innan liðsins og nú í úrslitakeppni ACC riðilsins sterkar var hann búinn að vinna sér inn sæti í byrjunarliðinu. Haukur lék 32 leiki með Maryland, byrjaði inn á í 3 og var með 2,8 stig að meðaltali í leik. Þá var hann með 2,1 frákast að meðaltali í leik og lék að jafnaði í 10,1 mínútu.
Mynd/ Haukur Helgi í leiknum gegn Duke. Þess má geta að Maryland hreinlega henti frá sér leiknum í síðari hálfleik og Duke gerðu 9-0 áhlaup þegar Haukur var utan vallar í síðari hálfleiknum.





