spot_img
HomeFréttirÞjálfarafundur 17.febrúar

Þjálfarafundur 17.febrúar

17:50 

{mosimage}

Laugardaginn 17.febrúar verður þjálfarafundur þar sem Geof Kotila bandaríski þjálfari Snæfells mun halda fyrirlestur.

Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla þjálfara að hittast og ræða málin. Gráupplagt er að fara svo á úrslitaleikina í Lýsingarbikarnum sem fara fram þennan dag í Laugardalshöll.

Kotila mun annars vegar fjalla um sína sýn á íslenskan körfubolta og ýmislegt spennandi út frá því og hins vegar um varnarleik. Snæfellingar hafa leikið frábæran varnarleik í vetur og gaman verður að fá að heyra frá Kotila hvaða áherslur hann er með.

Tekið er við skráningum á [email protected]

Nánari dagskrá kemur síðar.  

www.kki.is

 

Mynd: Sigurður Bjarnason, Stykkishólmspósturinn

Fréttir
- Auglýsing -