spot_img
HomeFréttirThelma Dís atkvæðamikil í sigri Ball State gegn Toledo

Thelma Dís atkvæðamikil í sigri Ball State gegn Toledo

Thelma Dís Ágústsdóttir og Ball State Cardinals unnu Toledo Rockets í nótt í bandaríska háskólaboltanum, 78-93. Cardinals eftir leikinn með fjóra sigurleiki og fjögur töp það sem af er tímabili. Í Mið-Ameríkudeildinni eru þær með sama árangur og Toledo og Ohio, en liðin eru í 5.-7. sæti.

Á 36 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Thelma Dís 15 stigum, 6 fráköstum, 5 stoðsendingum og stolnum bolta. Þá var skotnýting hennar í leiknum góð, þar sem hún setti niður 8 af 12 skotum sínum af vellinum. Næsti leikur Cardinals er gegn Kent State Golden Flashes komandi laugardag 10. janúar.

Tölfræði leiks

ESPN spilarinn – Heimili bandaríska háskólaboltans

Fáðu áskrift að ESPN spilaranum í gegnum Körfuna með 30% afslætti með því að skrá þig hér og nota afsláttarkóðann ESPNPLAYERXMAS

  • ESPN er heimili bandaríska háskólakörfuboltans og þar eru sýndir yfir 1000 leikir á tímabili
  • Ef þú býrð til aðgang fyrir 7. Janúar hér og setur inn ESPNPLAYERXMAS í promo code, þá færðu 30% afslátt
  • 12 mánuðir kosta aðeins 7700 kr.
  • Þetta tilboð rennur út 7. Janúar
  • Nýjar áskriftir hafa 7 daga prufutímabil
Fréttir
- Auglýsing -