Grindavík minnkaði muninn í 2-1 í undanúrslitaeinvígi sínu gegn Stjörnunni með sigri í Umhyggjuhöllinni í gærkvöldi, 91-105.
Um var að ræða þriðja leik liðanna, en vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sig í úrslitaeinvígið.
Karfan spjallaði við Kristófer Breka Gylfason leikmann Grindavíkur sem setti þá nokkra mikilvæga í kvöld:
Breki…til hamingju með geggjaðan sigur! Það sem mér er eiginlega efst í huga þessa stundina er hvernig í fjandanum það er bara hægt að setja þriggja stiga skot í þessum djöfulgangi og látum sem var hér í kvöld og er alltaf í úrslitakeppninni??
,,Það er bara svo virkilega skemmtilegt að heyra mannskapinn öskra hérna! Það kveikir vel í manni fyrir næsta skot!“
Já, er það ekki?
,,Jú heldur betur!”
Menn þurfa náttúrulega að reyna að nota þetta, draga orkuna úr húsinu í sig?
,,Klárlega sko.“
Þú hefur réttilega fengið mikið af hrósi undanfarin ár…það er auðvitað talað um geggjaðan varnarleik en svo er bara alveg rosalega dýrmætt fyrir liðið þegar þú setur eitthvað um 40% af þessum þristum niður líkt og í kvöld…og þetta voru risaþristar sem þú setur í kvöld?
,,Jájá, klárlega sko. Fyrst og fremst er það vörnin en svo lætur maður bara til sín taka sóknarmegin, tekur þessi skot og hefur sjálfstraust í þau og neglir þessu niður.“
Akkúrat. Eins og oft hefur verið rætt um þá ertu að spila með kóngum eins og Kane, Pargo, Óla Óla og fleirum þannig að það er kannski eðlilegt að andstæðingurinn velji það að þú megir helst fá skotið…er það ekki svolítið erfitt andlega?
,,Það getur alveg verið það en ég er nú bara orðinn nokkuð vanur þessu! Ég vona bara að þeir haldi þessu áfram…!“
…þú ert kominn með margra ára reynslu af þessu…?
,,Jájá þetta er reynsla! En þeir treysta mér í þessi skot og ég bara tek þau!“
Jájá, akkúrat. Enda fór þetta heldur betur vel í kvöld. Næsti leikur heima…það verður kannski allt öðruvísi leikur og allt það…
,,…það verður bara slagsmál enn og aftur held ég. Stjarnan er virkilega gott lið og við þurfum að halda fókus í …45 mínútur held ég í þeim leik!“
Einmitt…þetta var náttúrulega svolítið klúður þarna í leik 2…það verður að segjast eins og er.
,,Það var virkilega sárt. En við erum búnir að jafna okkur á því, við erum búnir að gleyma því.“
Jájá þið sönnuðuð það í kvöld!
,,Jájá!“
Það verður gaman í Smáranum á föstudag og bara aftur til hamingju með geggjaðan sigur!
,,Takk kærlega fyrir!“