HomeFréttirTeitur: Jón Sverris og Kobe

Teitur: Jón Sverris og Kobe

 

Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, var nokkuð hress eftir stórsigur sinna manna á ÍR í kvöld.  Stjarnan lék við hvern sinn fingur og stigu nokkrir ungir leikmenn upp þegar tækifærið á auknum mínútum gafst.  Eins og margir þjálfarar tók hann þó ekki alveg í það að leikurinn hafi verið léttur.

 

“Kannski léttur í þeim skilningi að taflan segir 89-61, en hann byrjar núll núll og strákarnir kannski gerðu hann léttan með frábæru efforti og frábærri vörn.  Það voru 14 stig í hálfleik og svo bara gáfum við í í byrjun seinni hálfleik, skorum held ég 10 fyrstu stigin í seinni hálfleik.  Þá er þetta náttúrulega ekki leikur lengur, þá er þetta búið og kannski formsatriði að klára þetta.  Ég er ánægður með andann í liðinu, allt annað heldur en þegar við vorum agalega daufur í Grindavík um daginn.  Núna voru menn kallandi og hjálpandi hvor öðrum í 40 mínútur, það gleður mig”.  

 

Ætli menn í Garðabænum skynji kannski stíganda í leik sinna manna ? 

“Ég ætla rétt að vona það, þetta er erfitt, við erum fámennir.  Núna vorum við 9 á skýrslu í dag og þá bara þjappa menn sér saman”.  

 

Jón Sverrisson gekk til liðs við Stjörnuna fyrir tímabilið en hefur ekki ennþá getað spilað vegna meiðsla.  Teitur sagði Jón vera á svipuðum batavegi og Kobe nokkur Bryant en þeir hafi báðir tekið sínar fyrstu æfingar með liðinu í vikunni.  

 

“Hann var að byrja loksins í contact í vikunni, hann og Kobe, þannig að við erum að vona að hann spili kannski seinasta leikinn í desember.  

Hann er stór og sterkur strákur, getur skotið, Jón í sínu besta, tekur kannski tíma að komast í þann gírinn, hann hjálpar okkur heilmikið.  Við erum að henda strákum sem eru bara 17 18 ára inná, sjötti maðurinn okkar, það er 17 ára í byrjunarliðinu, fyrsti maðurinn af bekknum og unglingaflokkurinn var að sjá um þetta í restina.  En þeir þurfa að fá að spila og gera mistök.  Við náðum að rúlla þessu nokkuð vel, það voru ekki bara fyrstu fimm sem stóðu sig vel í dag, það voru allir klárir á bekknum og þá gerast góðir hlutir”.  

 

ÍR náði að setja 5 fyrstu stig í fjórða leikhluta á örskömmum tíma en það truflaði Teit ekki mikið.

“Nei, þá voru menn búnir að fá góða hvíld hjá mér, stóru strákarnir sátu á bekknum, Fannar og Junior, þannig að ég hafði ekki þannig lagað áhyggjur.  Mér sýndist Marvin hafa áhyggjur, eini maðurinn í húsinu”.  

 

[email protected] 

mynd úr safni – [email protected] 

Fréttir
- Auglýsing -