HomeFréttirTeitur: Ég var skíthræddur

Teitur: Ég var skíthræddur

  

Þó að Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, hafi ekki verið ánægður með spilamennsku sinna manna í kvöld þá var honum mjög létt þegar sigurinn var kominn í hús eftir erfiðar lokamínútur. Stjarnan fór áfram eftir 6 stiga sigur á baráttuglöðum borgnesingum, 84-78.  

 

 

“Þeir eiga þvílíkt hrós skilið, leikurinn spilaðist eins og þeir vildu og þeir héngu í þessu með frábærri baráttu.  Maður var bara skíthræddur við þetta.  Mín reynsla er alltaf sú að þegar tvo úrvalsdeildarlið mætast í deild og bikar í sömu vikunnin þá venjulega skipta þau því á milli sín.  Það er svona mín reynsla í gegnum öll þessi ár og þess vegna var ég skíthræddur.  Ég vissi að við værum aðeins of rólegir og þeir væru vel uppi.  Þá mætist þetta á miðri leið og verður bara hörkuleikur”.  

 

Spilamennska Stjörnunnar var á köflum ekki eins og þeir eru vanir að spila, þeim gekk illa gegn flottum varnarleik gestanna og skoruðu til dæmis aðeins 14 stig í þriðja leikhluta.  

 

“Það komu svona ljósir punktar en þess á milli gerðum við okkur alveg rosalega erfitt fyrir.  Mikið til vegna þess að við vorum klaufar.  Justin átti ekki sinn besta leik í dag, hann var langt frá sínu besta og það getur skipt miklu máli þegar aðal leikstjórnandinn þinn er ekki að spila vel.  Hann er náttúrulega búinn að vera frábær fyrir okkur í vetur og það er virkilega ánægjulegt að landa sigri gegn úrvalsdeildarliði þegar hann á ekki góðan leik”.  

 

Stjarnan fer því áfram í 16 liða úrslit Poweradebikarsins í ár og stefna hátt í ár samkvæmt Teit.

“Við erum búin að vera að detta út akkurat í 32 liða eða 16 liða síðustu ár og alltaf lendum við á móti úrvalsdeildarliðum og oftast toppliðum.  Það er búið að vera eitthvað curse á okkur síðan við urðum bikarmeistarar hérna um árið, við höfum ekki komist lönd né strönd í þessari keppni en það á að breytast núna”.  

 

[email protected]

Mynd : [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -