HomeFréttirTCU fékk ekki boð í úrslitakeppni NCAA: Halda á WNIT mótið í...

TCU fékk ekki boð í úrslitakeppni NCAA: Halda á WNIT mótið í staðinn

 
Helena Sverrisdóttir og liðsfélagar í TCU fengu ekki boð í úrslitakeppni NCAA deildarinnar en það var fjarlægur möguleiki þangað til í nótt. Utah sem lagði TCU í úrslitum Mountain West deildarinnar komst beint inn og mæta Notre Dame skólanum í fyrstu umferðinni.
WNIT mótið hefst á fimmtudag þar sem TCU mun leika gegn Oral Roberts skólanum á heimavelli sínum í Daniel-Meyer Coliseum. Þrátt fyrir að komast ekki í úrslitakeppni NCAA fá Helena og félagar verðugt verkefni þar sem þær mæta Kevi Luper, annars árs nemi í liði Oral Roberts, en hún leiðir alla bandarísku háskóladeildina með 23,9 stig og 3,7 fráköst að meðaltali í leik.
 
Fréttir
- Auglýsing -