Jón Arnór Stefánsson og CAI Zaragoza unnu sterkan útisigur í ABC deildinni á Spáni um helgina. Hér að neðan gefur að líta svipmyndir úr leiknum en Zaragoza eru á toppi deildarinnar eftir að hafa unnið tvo fyrstu deildarleiki sína.
Okkar maður kemur örlítið við sögu í þessu broti, hann er reyndar ,,blokkaður” í döðlur en fór þó heim með stigin tvö og það er nákvæmlega það sem skiptir máli þegar upp er staðið. Tekinn samt ruuusalega!





