spot_img
HomeFréttirSverrir Þór aðstoðar Hjalta hjá Keflavík

Sverrir Þór aðstoðar Hjalta hjá Keflavík

Sverrir Þór Sverrisson verður aðstoðarþjálfari Keflavíkur í Subway deild karla á næstu leiktíð. Sverrir aðstoðar þar Hjalta Þór Vilhjálmsson sem þjálfað hefur liðið síðustu ár. Sverrir stýrði liði Grindavíkur eftir áramót á síðustu leiktíð og hafði ekki heyrst hver framtíð hans væri þar. Nú hefur það verið staðfest að Sverrir stýrir ekki Grindavík og fer aftur til Keflavíkur, þar sem hann er jú uppalinn.

Tilkynningu Keflavíkur má finna hér að neðan:

Keflvíkingurinn Sverrir Þór Sverrisson hefur snúið heim og mun verða Hjalta Vilhjálmssyni til aðstoðar með karlalið Keflavíkur í vetur. Sverri er óþarfi að kynna enda hefur hann gert garðinn frægan sem leikmaður og þjálfari og unnið allt sem hægt er að vinna í íslenskum körfubolta. 

Mikil ánægja ríkir innan herbúða Keflavíkur með að Sverrir hafi verið til í slaginn. Magnús Sverrir Þorsteinsson, formaður Keflavíkur, kvaðst ótrúlega ánægður með að fá Sverri. “Sverrir hefur marg sannað sig sem þjálfari og klárt mál að hann mun færa liðinu og klúbbnum í heild stemmningu og gleði, eitthvað sem honum fylgir. Þá mun reynsla hans, sigurvilji og elja koma til með að hjálpa leikmönnum og öllum í kringum klúbbinn. Við höfum rosalega mikla trú á því að hann og Hjalti komi til með að mynda gott þjálfarapar og styðja hvorn annan til góðra verka”.

Sjálfur segist Sverrir vera klár í slaginn. “Mér líst mjög vel á það sem er í gangi í Keflavík, mikill kraftur í nýrri stjórn að byggja ofan á síðustu tímabil og gera enn betur. Ég er þar að leiðandi mjög spenntur að koma inn sem aðstoðarmaður Hjalta og hef fulla trú á að við munum verða öflugt teymi.”

Fréttir
- Auglýsing -