Mynd/ Brynjar Ólafsson (t.v.) og Svavar Páll Pálsson (í miðju) ásamt Ívari Ásgrímssyni, þjálfara Hauka
Svavar Páll dregur fram skóna á ný
Hvergerðingurinn Svavar Páll Pálsson hefur tekið fram skóna á ný eftir árs fjarveru úr íslenskum körfubolta og mun leika með Haukum í Dominosdeildinni þetta tímabilið. Svavar er vel þekkt stærð í boltanum og mun styrkja Hauka í baráttunni í kringum körfuna. Svavar er 32 ára miðherji og um tveir metrar að hæð en fram að þessu hefur Svavar spilað allan sinn feril með Hamri og síðast tímabilið 2011-2012 í 1. deildinni.
Haukar skrifuðu einnig undir við Brynjar Ólafsson 28 ára Vestmanneying. Brynjar er 205 cm á hæð og hefur spilað með ÍBV. Þetta er frumraun Brynjars á stóra sviðinu og verður fróðlegt að sjá hvernig hann kemur til með að standa sig í deild þerra bestu.
Meðalhæð Haukaliðsins hækkaði því um nokkra sentímetra í dag með tilkomu þessara tveggja leikmanna.
Fréttir



